Styrkleikalisti fyrir 1. maí hefur verið birtur á vefnum
Styrkleikalisti fyrir 1. maí 2026 (kallaður eftir viku 19) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hafa úrslit úr Stórmóti HK 12. apríl, Akursmótinu 19. apríl, 1. deild kvenna 11. apríl, úrslitakeppni og umspilsleikjum úr deildakeppninni 11., 18. og 25. apríl verið lesin inn í listann.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].
Á forsíðunni má sjá Mörtu Dögg Stefánsdóttur og Þórunni Erlu Gunnarsdóttur, sem unnu sig báðar upp í 1. flokk kvenna í mars 2026.


