Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Árni Siemsen látinn

Árni Siemsen, borðtennismaður úr Erninum, er látinn. Árni lést á Landspítala Landakoti þann 3. maí sl.

Árni keppti alla tíð fyrir Borðtennisklúbbinn Örninn og var formaður félagsins um hríð á seinni hluta síðustu aldar. Hann vann nokkra Íslandsmeistaratitla í öldungaflokki, m.a. sigraði hann í einliðaleik 70 ára og eldri árin 2023 og 2025. Hann vann einnig titla í tvíliðaleik öldunga frá árinu 1996 til 2023 með nokkrum mismunandi meðspilurum.

Borðtennismenn nútímans þekkja Árna betur sem dómara, en hann var iðulega yfirdómari á borðtennismótum seinni árin. Árni var í fyrsta hópi Íslendinga sem lauk alþjóðlegu dómaraprófi og dæmdi einnig á mótum erlendis. Þá hélt hann ófá námskeið fyrir verðandi landsdómara hér á landi.

Árni var einstaklega hlýlegur maður og þægilegur í umgengni og verður sárt saknað í borðtennisheiminum.

Útför Árna fer fram frá Fella- og Hólakirkju 20. maí kl. 13.

Borðtennissamband þakkar Árna fyrir samfylgdina og störf hans fyrir íþróttina í gegnum árin og sendir fjölskyldu Árna samúðarkveðjur.

Aðrar fréttir