Guðbjörg Vala og Magnús Jóhann sigruðu á Lokamóti Gullfisks

Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR og Magnús Jóhann Hjartarson, BH, sigruðu á lokamótinu í mótaröð BTÍ og Gullfisks.
Lokamótið fór fram í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi föstudaginn 8. maí. Til keppni var boðið 8 stigahæstu leikmönnunum í karla- og kvennaflokki að loknum fjórum mótum í mótaröðinni á keppnistímabilinu. Þess má geta að tvær stúlkur komu frá Færeyjum til að taka þátt í mótinu.
Sigurvegarar í báðum flokkum fengu kr. 30 þús. í verðlaun, leikmenn í 2. sæti fengu kr. 10 þús. og 3. sætið gaf kr. 5 þús. í verðlaun.
Verðlaunahafar:
Opinn flokkur kvenna
1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
2. Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR
3. Helena Árnadóttir, KR
4. Magnea Ólafs, BM
Opinn flokkur karla
1. Magnús Jóhann Hjartarson, BH
2. Óskar Agnarsson, HK
3. Kristján Ágúst Ármann, BH
4. Lúkas André Ólason, KR
Sjá má röðun keppenda á síðu mótsins á vef Tournament Software, og þar hafa úrslit í einstökum leikjum verið birt þann 9. maí. Sjá: https://www.tournamentsoftware.com/tournament/06DCD90F-701F-462E-AC73-7BEF9CFEE526
Myndir af verðlaunahöfum frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.
Uppfært 9.5.


