Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Landsliðsæfingabúðir 14.-17. maí og opinn fundur um landsliðsmál

Þann 14.-17. maí heldur Sindre Åteigen, landsliðsþjálfari, æfingabúðir með landsliðshópnum. Einnig mun hann funda með landsliðsnefnd BTÍ og afrekssviði ÍSÍ, auk þess sem boðað verður til opins fundar um landsliðsmál og áherslur fram undan í íslenskum borðtennis.

Opni fundurinn verður haldinn laugardaginn 16. maí kl. 13-16 í B-sal ÍSÍ í Laugardal í Reykjavík. Sérstaklega er vonast til að þjálfarar og stjórnarmenn félaga sjái sér fært að mæta og taka þátt í umræðu um hvernig megi styrkja borðtennis á Íslandi á næstu árum, hvernig megi bæta starfið í félögunum og samstarf á milli félaga.

Dagskrá:

Fimmtudagur 14. maí

18:00 – 21:00 Æfing

Föstudagur 15. maí

18:00 – 21:00 Æfing

Laugardagur 16. maí

09:45 – 12:45 Æfing
13:00 – 16:00 Opinn fundur BTÍ, B-salur í húsi ÍSÍ í Laugardal
17:00 – 20:00 Æfing

Sunnudagur 17. maí

10:00 – 12:00 Stelpuæfing á Selfossi
13:15 – 16:15 Æfing og leikir

Hópurinn fær upplýsingar um staðsetningu einstakra æfinga.

Landsliðshópurinn:

Aldís Rún Lárusdóttir, KR
Alexander Chavdarov Ivanov, BH
Benedikt Aron Jóhannsson, Víkingur
Birgir Ívarsson, BH
Eiríkur Logi Gunnarsson, KR
Ellert Kristján Georgsson, KR
Gestur Gunnarsson, KR
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
Heiðar Leó Sölvason, BH
Helena Árnadóttir, KR
Ingi Darvis Rodriguez, Víkingur
Kristján Ágúst Ármann, BH
Lúkas André Ólason, KR
Magnús Gauti Úlfarsson, BH
Magnús Jóhann Hjartarson, BH
Matthías Thor Sandholt, BH
Nevena Tasic, Víkingur
Norbert Bedö, KR
Óskar Agnarsson, HK
Pétur Gunnarsson, KR
Sól Kristínardóttir Mixa, BH
Viktor Daníel Pulgar, KR
Þorbergur Freyr Pálmarsson, BH

Forsíðumynd af Magnúsi Gauta úr myndasafni.

Aðrar fréttir