Æfingabúðir og Vestfjarðamótið 29.-30. maí
Vestfjarðamótið í borðtennis verður haldið á Patreksfirði 30. maí. Daginn áðuar, 29. maí, verður boðið upp á æfingabúðir á Patreksfirði. Mótið og æfingabúðirnar eru samstarfsverkefni HHF – HSS – HSB – HSV og BTÍ.
Vestfjarðamótið
Keppt verður í eftirtöldum flokkum á mótinu:
U11 ára blandaður flokkur
U14 ára piltar
U14 ára telpur
U18 ára drengir
U18 ára stúlkur
Opinn flokkur karla
Opinn flokkur kvenna
Lágmarksþáttaka í flokki eru 2 leikmenn.
Skráningarfrestur fyrir mótið er til kl. 9:30 30. maí. Dregið verður kl. 9:45 á mótsstað.
Skráning fer fram í gegnum þetta skráningarform:
https://forms.gle/kksoL5XStnBpUnEh8
Þátttaka í mótinu er ókeypis, en verkefnið er styrkt af Hvatasjóði UMFÍ og ÍSÍ.
Í forminu eru nánari upplýsingar, bæði um Vestfjarðamótið og um æfingabúðirnar.
Ef einhver er í vandræðum með skráningarformið er sjálfsagt að senda tölvupóst með nafni, kennitölu, félagi og flokki á [email protected]
Leikið verður með Tibhar þriggja stjörnu kúlum á mótinu.
Æfingabúðir
Æfingabúðirnar standa frá kl. 18-21 þann 29. maí og eru fyrir leikmenn frá 1. bekk og eldri.
Hægt er að fá gistingu í Patreksskóla fyrir þátttakendur og fylgdarmenn.
Nánari upplýsingar og skráning eru í skráningarforminu: https://forms.gle/kksoL5XStnBpUnEh8



