Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Fjölbreytt dagskrá í heimsókn Sindre landsliðsþjálfara

Það var ýmislegt á dagskrá hjá Sindre Åteigen, landsliðsþjálfara, og landsliðshópnum helgina 14.-17. maí.

Auk borðtennisæfinga hlustaði hópurinn á fyrirlestur hjá Birgi Sverrissyni frá Lyfjaeftirliti Íslands um lyfjamisnotkun í borðtennis.

Þann 16. maí héldu Sindre og BTÍ opinn fund um landsliðsmál á Íslandi. Alls tóku 17 fulltrúar úr borðtennissamfélaginu þátt í fundinum.

Meðal helstu atriða sem voru rædd var hvað vel væri gert í íslenskum borðtennis og hvað læra má af framförum í Evrópu (m.a. Noregi) á síðustu 20 árum. Þá var farið yfir hvernig velja má landsliðsverkefni við hæfi, hæfilegt æfingamagn og aukið samstarf félaga.

Óhætt er að fullyrða að rökræður hafi farið fram með besta móti, meðal annars um flókin umræðuefni eins og hvernig skynsamlegt sé að skipta landsliðsfjármagni eftir aldurshópum.
Í lok fundar var þjálfaranámsverkefni veturinn 2026-2027 kynnt stuttlega til sögunnar, en tilkynnt verður nánar um það á næstunni.

Að morgni 17. maí var síðan haldin stelpuæfing á Selfossi. Fjórir þjálfarar sáu um æfinguna, Sindre, Ársól Clara Arnardóttir, Bæring Jón Guðmundsson og Rubén Illera Lopez. Þátttakendur voru 16 allt frá byrjendum til unglingalandsliðsleikmanna. Komu stúlkurnar frá Garpi, Gnúpverjum, KR, Laugalandi og Selfossi en forföll voru hjá stúlkunum frá Dímon.

Þá fundaði Sindre með landsliðsnefnd BTÍ og með ÍSÍ.

Aðrar fréttir