Sumarnámskeið í borðtennis sumarið 2026
Nokkur íþróttafélög bjóða upp á sumarnámskeið í borðtennis í sumar. Í ár hefur a.m.k. frést af námskeiðum hjá Akri, Borðtennisdeild KR, Borðtennisdeild Víkings, ÍFR og Umf. Vísi.
Akur – nánari upplýsingar vantar
ÍFR – æfingabúðir fyrir hreyfihamlaða 29. júní – 3. júlí og 20. – 24. júlí
KR – Vikulöng námskeið frá 15. júní til 31. júlí.
Umf. Vísir – æfingabúðir fyrir hreyfihamlaða 12. – 14. júní
Víkingur – Vikulöng námskeið frá 11. júní til 17. júlí, fyrsta námskeiðið þó 2 dagar.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum og/eða fésbókarsíðum félaganna. Slóðir á heimasíður aðildarfélaga BTÍ má sjá undir https://bordtennis.is/adildarfelog/


