Æfingabúðir Umf. Vísis fyrir hreyfihamlaða
Fjórir ungir hreyfihamlaðir borðtennisleikmenn frá þremur félögum tóku þátt í æfingabúðum fyrir hreyfihamlaða borðtennismenn að Hrollaugsstöðum í Suðursveit 12.-14. júní. Leikmennirnir komu frá Akri, ÍFR og Umf. Vísi.
Þjálfarar í æfingabúðunum voru Bjarni Þorgeir Bjarnason og Hákon Atli Bjarkason.
Verkefnið var styrkt af Hvatasjóði.
Auk borðtennisæfinga var ýmislegt fleira gert sér til skemmtunar. Farið var á fjórhjól og Icelagoon bauð upp á siglinu á lóninu.


