Allir íslensku leikmennirnir unnu leik á Mega Cup
Leikmenn úr íslenska unglingalandsliðshópnum léku á Mega Cup í Noregi helgina 13.-14. júní.
Allir íslensku leikmennirnir unnu a.m.k. einn leik á mótinu.
Andri Sigurjón Hrundarson og Jörundur Steinar Hansen komust á verðlaunapall en þeir urðu í 3. sæti í liðakeppni 15 ára og yngri.
Að móti loknu sóttu krakkarnir æfingabúðir 15.-16. júní.
Forsíðumyndin sýnir leikmenn og íslensku þjálfarana í æfingabúðunum.


