Auður sækir leiðtoganámskeið formanna hjá ITTF
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, formaður BTÍ, var valin úr hópi umsækjenda til að sækja leiðtoganámskeið hjá ITTF, alþjóða borðtennissambandinu. Þetta er í fyrsta skipti sem þetta námskeið er haldið og koma þátttakendurnir tíu víðs vegar að úr heiminum.
Námskeiðið fer fram í fjarnámi og hittast þátttakendur með kennaranum Stephanie Nellis mánaðarlega í sex mánuði.
Nánari upplýsingar: https://www.ittf.com/2026/06/10/first-cohort-selected-for-ittf-member-associations-presidents-leadership-programme/
Forsíðumynd frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.


