Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Unglingalandsliðið leikur á Norður-Evrópumótinu 26.-28. júní

Unglingalandsliðið leikur á Norður-Evrópumóti unglinga (NETU) í Rakvere í Eistlandi 26.-28. júní. Ísland sendir lið í kadettflokki sveina (U15 ára), juniorflokki stúlkna (U19 ára) og juniorflokki drengja (U19 ára).

Leikmenn Íslands á mótinu:

Kadett sveinar (U15 ára): Benedikt Darri Malmquist, HK og Lúkas André Ólason, KR. Liðið leikur í riðli með Danmörku, Eistlandi-1 og Noregi.

Junior stúlkur (19 ára): Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR; Helena Árnadóttir, KR; Marta Dögg Stefánsdóttir, KR og Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR. Stúlkurnar drógust í riðil með Eistlandi-1, Lettlandi og Litháen-1.

Junior drengir (U19 ára): Alexander Chavdarov Ivanov, BH; Heiðar Leó Sölvason, BH; Kristján Ágúst Ármann, BH og Viktor Daníel Pulgar, KR. Þeir eru í riðli með Eistlandi-1, Lettlandi og Svíþjóð.

Sindre Åteigen, landsliðsþjálfari og Ársæll Aðalsteinsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, verða með liðunum á mótinu.

Dagskrá íslensku liðanna í liðakeppni á mótinu:

26. júní
09:00 – Eistland-1 vs Ísland (U19 stúlkur)
09:00 – Eistland-1 vs Ísland (U15 sveinar)

11:30 – Litháen 1 vs Ísland (U19 stúlkur)
11:30 – Ísland vs Eistland-1 (U19 drengir)

14:00 – Lettland vs Ísland (U19 stúlkur)
14:00 – Svíþjóð vs Ísland (U19 drengir)
14:00 – Danmörk vs Ísland (U15 sveinar)

16:30 – Ísland vs Lettland (U19 drengir)
16:30 – Noregur vs Ísland (U15 sveinar)

Upphaflega stóð til að drengjaliðið léki á EM unglinga en ekki á NETU, en þær áætlanir breyttust og liðið leikur á NETU en ekki á EM. Það verða því engir keppendur frá Íslandi á EM unglinga þetta árið.

Slóð á vefsíðu mótsins á vef eistneska borðtennissambandsins: https://eltl.ee/voistlused/479

Á Facebook má sjá myndir af svæðinu á síðu NETU, https://www.facebook.com/northeuropeantabletennisunion

Á forsíðunni má sjá Helenu og Viktor úr myndasafni BTÍ.

Uppfært 25.6. með andstæðingum, dagskrá og slóð á vefsíðu eistneska sambandsins.

Aðrar fréttir