Agnes Lovísa Jónsdóttir er borðtennismaður júnímánaðar
Agnes Lovísa Jónsdóttir, 15 ára, er leikmaður hjá ÍFR og hefur á stuttum tíma náð góðum árangri innanlands sem utan.
Útsendari Borðtennissambandsins náði í þessa efnilegu borðtenniskonu á aukaæfingu í ÍFR í júní til að fá að kynnast henni betur:
Hvar, hvenær og hjá hverjum byrjaðir þú að æfa borðtennis?
„Ég byrjaði að æfa í ÍFR í september í fyrra. Og hjá Hákoni [Atla Bjarkasyni].“ Hér má geta þess að Agnes á heima í Keflavík og leggja foreldrar hennar því talsvert á sig til að hún geti sótt æfingar oftast fjórum sinnum í viku í Reykjavík, auk þess sem Hákon reynir að æfa 1x í viku með henni í Keflavík (í húsnæði BR).
Hvaða gúmmí notar þú?
„Ég nota Glacier 09C í forhönd og í bakhönd Glacier.“
Ert þú með einhverja hjátrú eða hefðir fyrir leiki?
„Nei.“
Hver er uppáhalds borðtennis-sigurinn þinn?
„Þegar ég vann Íslandsmeistara unglinga.“ Hér vísar Agnes til þess þegar hún og æfingafélagi hennar Anna Karen Malmquist Bjarnadóttir náðu þeim merka árangri að verða Íslandsmeistarar unglinga í tvíliðaleik 15 ára og yngri – í flokki ófatlaðra. Vísir fjallaði um málið og starfið í ÍFR í leiðinni.
Aðspurð segir Agnes ekki eiga sér erlenda borðtennisfyrirmynd en nefnir þó að Anika Brüchle frá Þýskalandi hafi haft áhrif á sig. Agnes hitti Aniku í æfingaferð þegar þær Jóna Kristín Erlendsdóttir fylgdu Hákoni Atla í til Þýskalands í febrúar. Þá kynntist hún Aniku og Thomasi Brüchle og segir hún að Anika hafi kennt sér mjög mikið og sé „geggjaður þjálfari“.
Agnes hefur farið í þrjár borðtennisferðir erlendis hingað til (Malmö Open, ITTF World Para Future Costa Brava auk framangreindrar æfingaferðar) og eru tvær aðrar ferðir á dagskrá í ágúst og október. Þá er stefnan sett á Evrópumótið í ágúst 2027. Agnes keppir í fötlunarflokki 7 og þykir mjög efnileg.
Af hverju er borðtennis besta íþróttin?
„Mér finnst bara gaman að spila hana.“ Fréttaritari bendir á að Agnes var í vinsælu viðtali á Instagram-reikningi Parasport Iceland 7. mars sl. og er að finna ofarlega á Instagram reikningi BTÍ. Við það tækifæri nefndi Agnes einnig að á æfingum í ÍFR væri frábær félagsskapur og að gaman væri að keppa.
BTÍ þakkar Agnes Lovísu kærlega fyrir viðtalið og hlakkar til að fylgjast með framförum hennar á komandi tímabilum og ferðalögum á hin ýmsu mót á komandi mánuðum.
Forsíðumynd frá Stefáni Ingvari Vigfússyni.


