Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Skipan nefnda BTÍ keppnistímabilið 2026-2027

Hinar þrjár hefðbundnu nefndir sem hafa starfað fyrir BTÍ undanfarin ár hafa verið skipaðar fyrir keppnistímabilið 2026-2027. Reynt er að endurspegla fjölbreytileika hreyfingarinnar þannig að nefndarmenn komi úr ólíkum félögum, séu á mismunandi aldri og af fleiri en einu kyni.

Þessi skipa nefndir BTÍ 2026-2027:

Mótanefnd:

  • Guðrún Gunnarsdóttir (formaður)
  • Ársól Clara Arnardóttir
  • Darian Adam Róbertsson Kinghorn

Þau Ársól og Darian tóku við af Magnúsi Birgi Kristinssyni og Rubén Illera López og er þeim þakkað fyrir störf þeirra á síðasta keppnistímabili.

Mótanefnd sér um utanumhald mótadagatals BTÍ og svarar spurningum um skipulags- og vafaatriði því tengt. Hafa má samband á [email protected].

Útbreiðslunefnd:

  • Auður Tinna Aðalbjarnardóttir (formaður)
  • Anne-Andrée Bois
  • Pétur Xiaofeng Árnason
  • Sigurgeir Ingi Eyvinds Þorkelsson

Auður Tinna er ein eftir að útbreiðslunefnd síðasta keppnistímabils og er þeim Bjarna Malmquist og Ruben Illera López þökkuð þeirra góðu störf. Sigurgeir Ingi Eyvinds Þorkelsson kemur aftur inn í nefndina eftir stutta fjarveru en þau Anne og Pétur eru nýir nefndarmenn.

Nefndin leggur áherslu á að hvetja til og styðja við stofnun nýrra borðtennisdeilda víða um land og að styðja við borðtennisfræðslu. Hafa má samband á [email protected] eða [email protected].

Landsliðsnefnd:

  • Jóhann Ingi Benediktsson (formaður)
  • Auður Tinna Aðalbjarnardóttir

Landsliðsnefnd er óbreytt frá síðasta keppnistímabili og starfar nefndin í nánu samstarfi við Sindre Åteigen, landsliðsþjálfara, sem hefur verið mjög hjálplegur.

Nefndin sér um samskipti við landsliðsþjálfara og styður við skipulagsmál A-landsliðs- og unglingalandsliðsverkefna. Hafa má samband á [email protected], [email protected] og [email protected].

Aðrar fréttir