Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Alþjóðlegt dómarapróf haldið 29. nóvember 2026

BTÍ stefnir að því að halda alþjóðlegt dómarapróf þann 29. nóvember 2026. Staðsetning er ekki endanlega frágengin en líklega verður prófið í Reykjavík.

Áhugasamir próftakar sendi póst á netfangið [email protected] í síðasta lagi 25. ágúst nk.

Skilyrði fyrir því að geta skráð sig í prófið eru að vera fædd/ur 1. janúar 2006 eða fyrr, vera með landsdómararéttindi og hafa dæmt leiki á móti höldnu af BTÍ (þ.e. Íslandsmótin og deildakeppnin) á síðustu 2 árum.
BTÍ greiðir þátttökugjöldin en ef mjög margir lýsa yfir áhuga á þátttöku verður fjöldi þátttakenda hugsanlega takmarkaður. Litið verður jákvætt á að fá umsóknir frá einstaklingum af ólíkum aldri, kynjum, landssvæðum o.s.frv.

Prófið fer fram á netinu og skráðir próftakar fá aðgang að netnámskeiði, sem verður opið 1.-25. október og er skylda að sitja.

Þess má geta að stefnt er á að Norður-Evrópumót fullorðinna verði á Íslandi árið 2030 og þykir BTÍ mjög jákvætt ef fleiri dómarar halda áfram að bætast í stækkandi hóp alþjóðadómara hérlendis.

Næsta próf til réttinda alþjóðadómara verður sennilega haldið haustið 2028.

Aðrar fréttir