Örn Þórðarson er borðtennismaður júlímánaðar
Örn Þórðarson er formaður Borðtennisdeildar HK, virkur leikmaður og var formaður BTÍ árin 2020-2022. Hann hefur verið á kafi í borðtennis síðastliðin tíu ár. Útsendari Borðtennissambandsins náði á Örn á æfingu í HK, í íþróttahúsi Snælandsskóla.
Hvar, hvenær og hjá hverjum byrjaðir þú að æfa borðtennis?
„Ég byrjaði þegar okkur í Kóða, þar sem ég er að vinna [sem tæknistjóri (CTO)], vantaði fundarborð. Við ákváðum að kaupa borðtennisborð og fórum að spila. Svo vorum við auðvitað að kaupa spaða í Pingpong og rákumst þar á Bjarna í HK. Hann kom og kenndi okkur aðeins. Svo svona ári seinna byrjaði ég að mæta á æfingar í HK – því ég vildi verða bestur í Kóða.“
Ertu bestur í Kóða í dag?
„Nei. Mér varð það á að ég réði Óskar [Agnarsson, HK-ing], og hann er þannig séð bestur í Kóða. Þannig að ég verð að vera næstbestur.“
Hvaða gúmmí notar þú?
„Akkúrat í dag er ég með Stiga DNA Dragon Grip og Xiom Omega Euro, en ég er að fara að nota Dignics 05 á bakhönd í staðinn fyrir Xiom-gúmmíið.“
Ert þú með einhverja hjátrú eða hefðir fyrir leiki?
„Nei, það held ég ekki. Bara mæta og spila og reyna að hafa gaman – og reyna að hafa stjórn á keppnisskapinu, sem er stundum mikið. Það vinnur nú oftast með manni, en stundum á móti.“
Hver er uppáhalds borðtennis-sigurinn þinn?
„Við unnum einu sinni úrslitaleik í annarri deild. Þá vorum við ég, Óskar og Binni heitinn saman í liði. Við fórum til Akureyrar og náðum að vinna sterkt KR-lið í úrslitaleik.“ Hér vísar Örn til æsispennandi úrslitaleiks í annarri deild karla árið 2018.
Hver er þín erlenda borðtennisfyrirmynd?
„Ég verð nú bara að segja Timo Boll, fyrst hann gat verið svona gamall í borðtennis. Hann getur verið fyrirmynd okkar eldri spilara – eða [Vladimir] Samsonov, sem var líka gamall að spila.“ Hér má bæta við að Örn hefur verið með sigursælli leikmönnum Íslandsmóts öldunga undanfarin ár, þar hefur hann sex sinnum orðið Íslandsmeistari í einliðaleik karla í sínum aldursflokki og jafnoft með félögum sínum í HK í tvíliðaleik, oftast Reyni Georgssyni.
Er einhver leikmaður eða þjálfari hér á Íslandi sem hefur haft áhrif á þig?
„Ég er auðvitað búinn að vera hérna í HK í tíu ár, þannig að Bjarni hefur reynt að kenna mér það sem ég kann.“
Áttu góða sögu úr borðtennisferð?
„Ég veit ekki hvað skal segja. Við höfðum auðvitað mjög gaman að því þegar við fórum í þessa ferð til Akureyrar og spiluðum við KR. Binni heitinn var auðvitað með okkur og hann var verulega stressaður þegar á reyndi í borðtennisinum. Ég held að á leikdaginn hafi hann borðað örugglega tíu banana – og þurft örugglega að fara fimmtán sinnum að pissa. Við félagar hans höfðum mjög gaman að þessu.“
Af hverju er borðtennis besta íþróttin?
„Hún reynir vel á allt sem íþrótt þarf að reyna á og það er ofboðslega gaman að spila hana og ofboðslega gaman að æfa. Frábær æfing og þjálfun.“
BTÍ þakkar Erni kærlega fyrir viðtalið og hlakkar til að fylgjast með honum og hans góðu störfum í þágu hreyfingarinnar. Þess má geta að Borðtennisdeild HK stefnir á að vera með þrjá æfingahópa í vetur í stað tveggja, vegna fjölgunar iðkenda og er um að gera fyrir áhugasama að kynna sér æfingarnar í Snælandsskóla.
Með viðtali þessu er annars komið heilt ár af verkefninu borðtennismaður mánaðarins – með viðtölum við tólf áhugaverða einstaklinga víða um land. Næsta viðtal hefur verið tekið og styttist í að það verði birt.
Lesendurg eru jafnframt hvattir til að halda áfram að senda inn tilnefningar, til að styðja við góða umfjöllun árið 2026.


