Topp átta mót karla verður 5.-6. september
Helgina 5.-6. september keppa átta af efstu leikmönnunum á styrkleikalistanum um sæti í landsliðinu á Evrópumeistaramótinu og Norður-Evrópumótinu (NETU), sem fram fara í haust.
Ingi Darvis Rodriguez, Víkingi, tekur ekki þátt í mótinu en hann hefur þegar verið valinn í landsliðið fyrir bæði mótin.
Eftirtaldir leikmenn taka þátt í mótinu:
Birgir Ívarsson, BH
Davíð Jónsson, KR
Eiríkur Logi Gunnarsson, KR
Magnús Jóhann Hjartarson, BH
Magnús Gauti Úlfarsson, BH
Matthías Þór Sandholt, BH
Óskar Agnarsson, HK
Pétur Gunnarsson, KR
Benedikt Aron Jóhannsson, Víkingi, Ellert Kristján Georgsson, KR og Gestur Gunnarsson, KR, taka ekki þátt í mótinu vegna meiðsla og voru aðrir valdir í þeirra stað.
Leikmennirnir leika allir við alla í einum riðli.
Laugardaginn 5. september verður leikið í Íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst keppni kl. 16.45. Þá verða leiknar fjórar umferðir. Síðustu þrjár umferðirnar verða spilaðar sunnudaginn 6. september í Íþróttahúsi Hagaskóla, og hefst keppni kl. 12.15. Reiknað er með 45 mínútum á hverja umferð.
Yfirdómari er Pétur Marteinn Urbancic Tómasson.
Beint streymi verður frá mótinu á YouTube rás BTÍ á laugardeginum.
Stefnt er að því að setja úrslit leikja jafnóðum á vef Tournament Software.
Sjá má röð leikja á vef Tournament Software: https://www.tournamentsoftware.com/tournament/EDF43E9F-78EA-4A08-B13C-14E7BC21CD80
Forsíðumynd af karlaliði Íslands á NETU árið 2024, en þeir Ingi Darvis, Magnús Gauti og Matthías Þór skipuðu liðið.


