Kristján og Lúkas eru borðtennismenn ágústmánaðar
Kristján Ágúst Ármann og Lúkas André Ólason eru ungir og efnilegir borðtennismenn sem hafa báðir sótt fjölda móta og æfingaferða erlendis. Kristján er leikmaður BH og Lúkas er leikmaður KR.
Sindre Åteigen landsliðsþjálfari tilnefndi þá sem sameiginlega borðtennismenn fyrsta innleggs nýs árs í þessari viðtalaröð þar sem hann var ánægður með að þeir vörðu sex vikum saman í ólíkum borðtennisverkefnum í sumar (Norður-Evrópumót unglinga, æfingabúðir í Noregi og æfingabúðir í Kína). Þannig nýttu þeir sumarið til efla sig og styrkja, sem félagar og fyrir íslenska unglingalandsliðið.
Hvar, hvenær og hjá hverjum byrjaðir þú að æfa borðtennis?
Kristján: „Ég byrjaði að æfa borðtennis í BH fyrir svona fimm árum, hjá Tomma og Ingimari.“
Lúkas: „Ég byrjaði í borðtennis fyrir sirka fjórum árum, hjá Guðjóni í KR.“
Hvaða gúmmí notar þú?
Lúkas: „Ég nota DNA Platinum og Evolution MX-P.“
Kristján: „Ég nota K3 og MK.“
Ert þú með einhverja hjátrú eða hefðir fyrir leiki?
Lúkas: „Nei, bara borða vel. Bara ekki vera stressaður.“
Kristján: „Nei, ég er ekki með neina hjátrú.“
Hver er uppáhalds borðtennis-sigurinn þinn?
Kristján: „Það er örugglega þegar ég vann á móti Felix Ellebring í Svíþjóð, á Suður-Svíþjóðarmeistaramótinu.“
Lúkas: „Sigrarnir mínir á NETU [Norður-Evrópumóti unglinga] voru frekar skemmtilegir. Og svo var líka gaman þegar ég vann Íslandsmót unglinga þegar ég var svona ellefu ára eða eitthvað — af því að það var fyrsti bikarinn minn.“ Hér vísar Lúkas til þess þegar hann varð Íslandsmeistari í hnokkaflokki 11 ára og yngri á Íslandsmóti unglinga í KR-heimilinu 2022. Hann varð aftur Íslandsmeistari unglinga í vor á Selfossi, í flokki sveina 15 ára og yngri. Næstu tvö ár á undan því varð Kristján Ágúst einmitt Íslandsmeistari í sama flokki.
Áttu góða sögu úr borðtennisferlinum?
Lúkas: „Ég er ekki með neina ákveðna sögu, en ég og Kristján týndumst í Sjanghæ fyrsta daginn okkar [í sumar]. Við vorum að koma úr búðinni.“ Aðspurður hversu lengi þeir hafi verið týndir segir Lúkas: „Svona klukkutíma, einn og hálfan — og við vorum að halda á svona ógeðslega þungum tólf pakka af vatn, labbandi bara um downtown Shanghæ.“
Kristján: „Við áttum að hita upp fyrir leik á NETU á móti Litháen og ég var að leita að Alex[ander Ivanov], liðsfélaga mínum, til að hita upp með. Það fann hann enginn, það var alltaf verið að hringja í hann og bara fimm mínútur í leik eða eitthvað. Svo var hann bara sofandi inni í klefa.“ Heppilega náðist þó að keppa leikinn!
Hver er þín erlenda borðtennisfyrirmynd?
Kristján: „Örugglega bara Timo Boll.“
Lúkas: „Mér finnst Harimoto vera frekar skemmtilegur.“
Er einhver leikmaður eða þjálfari hér á Íslandi sem hefur haft áhrif á þig?
Lúkas: „Örugglega bara allir unglingalandsliðsþjálfararnir og landsliðsþjálfararnir frá Íslandi. Það er enginn ákveðinn beint og þjálfararnir mínir í KR – og fólkið í KR líka.“
Kristján: „Ég held bara Tommi og Ingimar, þjálfarar í BH. Þeir eru alltaf bara mjög góðir.“
Af hverju er borðtennis besta íþróttin?
Kristján: „Það er bara skemmtilegt.“
Lúkas: „Já, bara skemmtilegt – og gaman að ferðast og kynnast nýju fólki.“
BTÍ þakkar Kristjáni og Lúkasi kærlega fyrir viðtalið og hlakkar til að fylgjast með þeim á mótum og í landsliðsverkefnum á komandi tímabilum.


