Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Uppfærsla á lögum og reglugerðum BTÍ

Reglugerðarbreytingar sumarið 2026

Ný stjórn BTÍ nýtti júlífund sinn til að ræða ýmsar reglugerðarbreytingar og á septemberfundi stjórnar bættist ein slík við. Þær hafa nú verið birtar í viðkomandi reglugerðum sambandsins en skýringartexti er hér:

Elsti aldursflokkurinn á Íslandsmóti unglinga hækkaður um eitt ár

Árin 2020-2021 breytti Alþjóða borðtennissambandið 16-18 ára aldursflokki sínum, svokölluðum juniorflokki eða U18 flokki í 16-19 ára flokk.

Ákall var um það á ársþingi BTÍ í maí 2026 að slíkt hið sama yrði gert hérlendis og hefur stjórn orðið við því.

Verður því keppt í flokki drengja og stúlkna, 16-19 ára, á Íslandsmóti unglinga í Kópavogi í vor, sem og samsvarandi tvíliða- og tvenndarleiksflokkum.

Breyting á skiptingu Íslandsmóts fullorðinna á tvær helgar og að einliðaleikur sé leikinn í riðlum gerð varanleg

Ánægja var með fyrirkomulagið vorið 2026 og því hefur verið fellt út orðalag um að um tímabundna breytingu sé að ræða.

Regla um að leika þurfi til úrslita í tvenndarleik á fyrri mótsdegi tekin út

Mótanefnd hefur ítrekað lagt til að ekki sé lengur skylt að leika til úrslita í tvenndarleik á Íslandsmótum fyrri daginn.

Sérstaklega nú þegar meistaraflokkar og aðrir flokkar eru leiknir á tveimur helgum gefst meira rými fyrir tvenndarleikinn. Því getur úrslitaleikur hans verið á sunnudeginum eins og úrslit annarra flokka, til að hann njóti meiri virðingar og fleiri áhorfenda.

Lítilsháttar breyting á röð leikja í bikarkeppninni

Tillaga kom frá formanni mótanefndar um að færa tvenndarleikinn í hverri bikarkeppnisviðureign fram fyrir tvíliðaleik karla. Með þessu móti er tryggt að konur fái alltaf tvo leiki í hverri viðureign – því það hefur regluglega gerst að þær fái annars bara einn einliðaleik ef viðureign lýkur 4-0.

Fyrirvari á félagaskiptum

Á liðnu tímabili kom það einu sinni upp að leikmaður hafði áhuga á að skipta um félag að morgni dags sem ákveðin keppni átti að fara fram. Ekkert í reglum BTÍ kom í veg fyrir að formaður mótanefndar mætti samþykkja það en stjórn hefur ákveðið að á slíkum ákvörðunum leikmanna verði að vera betri fyrirvari.

Niðurstaðan varð sú að til þess að skipti á keppnisfélagi taki gildi fyrir borðtennismót, þurfi hún að hafa borist eigi síðar en 72 klukkustundum (þ.e. þremur sólarhringum) áður en mót hefst.

Sem dæmi: Hefjist mót kl. 10 á laugardagsmorgni þarf tilkynning um breytt félag að hafa borist mótanefnd eigi síðar en kl. 10 á miðvikudegi, fyrr í sömu viku. Berist beiðnin hins vegar t.d. kl. 20 á fimmtudeginum taka skiptin gildi að móti loknu.

Áfram gildir sú regla að heimilt sé að skipta um keppnisfélag einu sinni á hverju keppnisári.

Breytingar samþykktar á lögum sambandsins á ársþingi 2026

Að lokum má minnast á að lög sambandsins, með breytingum samkvæmt borðtennisþingi 10. maí 2026, hafa verið birt á heimasíðunni. Til upprifjunar má lesa um lagabreytingarnar hér, en allar tillögur voru einróma samþykktar.

Aðrar fréttir