Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn í liðakeppni karla 2015 – Fyrsti leikur á föstudaginn

Víkingur-A og KR-A mætast í fyrri úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í borðtennis 2015 föstudaginn 17.apríl kl: 19:00 í TBR húsinu, Gnoðavogi. Víkingur-A hefur titil að verja en þeir hafa haldið titlinum síðast liðin þrjú ár eða síðan 2012.


Víkingur-A:


Magnús Kristinn Magnússon

Magnús Finnur Magnússon

Daði Freyr Guðmundsson


KR-A:


Kári Mímisson

Pétur Gunnarsson

Pétur Marteinn Urbancic Tómasson

Breki Þórðarson

Um að gera að mæta og styðja á bak við sitt fólk og félag eða hreinlega verða vitni að stórbrotnum borðtennis.

Annar leikur liðana fer fram mánudaginn 20.apríl í Hagaskóla. Ef staðan verður jöfn 1-1 verður oddaleikur þann 21.apríl.

Aðrar fréttir