Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

KR-C tekur forystu í 2. deild karla eftir tvær umferðir

Fyrstu tvær umferðirnar í 2. deild karla voru leiknar í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi laugardaginn 19. september.

Eftir tvo leiki er staðan þannig að KR-C vann báða leiki sína og er efst með 4 stig. BH-C, BR-A og HK-B hafa 2 stig en BR-B og Selfoss-A hafa 1 stig.

Úrslit úr einstökum viðureignum:

HK-B – KR-C 3-6
BR-B – BR-A 2-6
Selfoss-A – BH-C 2-6
Selfoss-A – BR-B 5-5
BR-A – HK-B 2-6
BH-C – KR-C 3-6

Úrslit úr einstökum leikjum verða fljótlega lesin inn á vef deildarinnar hjá Tournament Software, sjá https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=F5C527AC-49A2-47EC-B258-8A1C494E16B5

Á forsíðumyndinni má sjá liðin sem urðu í efstu sætunum í 2. deild vorið 2026.

Aðrar fréttir