Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Fjögur lið efst í höfuðborgarsvæðisriðli 4. deildar karla

Keppni hófst í höfuðborgarsvæðisriðli 4. deild karla sunnudaginn 20. september. Bæði var leikið í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi og í Íþróttahúsi ÍFR við Hátún í Reykjavík.

Eftir tvær umferðir er staðan í deildinni sú að fjögur lið hafa 3 stig en það eru BH-D, ÍFR-A, KR-E og KR-F. ÍFR-B og KR-G hafa ekkert stig að loknum tveimur umferðum.

Keppni í suðurriðlum deildarinnar hefst 18. október.

Úrslit úr einstökum viðureignum:

KR-E – KR-G 6-1
ÍFR-B – ÍFR-A 2-6
BH-D – KR-F 5-5
BH-D – ÍFR-B 6-1
ÍFR-A – KR-E 5-5
KR-F – KR-G 6-2

Á forsíðumyndinni, sem er úr myndasafni, má m.a. sjá þær Önnu og Agnesi, leikmenn liðs ÍFR-B.

Aðrar fréttir