Akur og Víkingur-B efst í 3. deild karla eftir fyrsta leikdag
Keppni hófst í 3. deild karla sunnudaginn 20. september og var leikið í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi. Í deildinni eru sex lið, en ólíkt því sem er í öðrum borðtennisdeildum eru ekki alltaf leiknir sex leikir hvern leikdag, heldur geta leikir verið fleiri eða færri, til að fækka ferðum liða á milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins. Það fylgir, að ekki hafa öll lið leikið jafnmarga leiki.
Í þetta skipti voru fimm leikir á áætlun.
Staðan í deildinni að loknum fimm leikjum sú að Akur og Víkingur-B hafa 3 stig að loknum tveimur leikjum, HK-C hefur 2 stig eftir einn leik, KR-D er með 2 stig eftir tvo leiki og BM og HK-D hafa ekkert stig.
Úrslit úr einstökum viðureignum:
HK-C – HK-D 6-1
Víkingur-B – BM 6-0 (BM mætti ekki til leiks)
Akur – KR-D 6-3
HK-D – KR-D 4-6
Víkingur-B – Akur 5-5
Á forsíðumyndinni má sjá unga leikmenn HK vorið 2026, sem unnu sig þá upp í 3. deild.


