Sigur á Grænlandi og þrír sigrar í einliðaleik á NETU
Keppni á Norður-Evrópumótinu (NETU) í Eistlandi hélt áfram föstudaginn 25. september. Keppni hélt áfram í liðakeppni karla og keppni hófst í einliðaleik karla og kvenna. Leikið er í riðlum. Í liðakeppni er keppt um hvert sæti en í einstaklingsgreinum fara tveir efstu úr riðlunum áfram í útsláttarkeppni.
Liðakeppni
Íslensku karlarnir mættu Grænlandi í taphlið töflunnar í liðakeppni karla. Karlarnir unnu góðan 3-1 sigur. Ingi Darvis tapaði 1-3 fyrir Ivik Nielsen, Matthís sigraði Rune Schultz 3-1, Magnús Gauti vann Poul Petersen 3-0 og Matthías vann Ivik Nielsen 3-0 í lokaleiknum.
Næsti leikur þeirra er við Eistland-2 kl. 9.00 26. september.
Einliðaleikur
Guðbjörg Vala leikur í riðli E, sem er fjögurra manna. Hún vann leikmann frá Eistlandi 3-0 en tapaði 0-3 fyrir annarri konu frá Eistlandi og konu frá Lettlandi.
Sól er í riðli F, sem er líka fjögurra manna riðill. Hún tapaði öllum leikjum sínum í riðlinum, 1-3 fyrir danskri stúlku og 0-3 fyrir stúlkum frá Eistlandi og Litháen.
Matthías er í C-riðli og tapaði báðum leikjum sínum í riðlinum. Hann tapaði 1-3 fyrir eistneskum leikmanni og 10-12 í oddalotu fyrir Norðmanni.
Magnús Gauti lék í G-riðli. Hann vann annan leik sinn 3-0 gegn eistneskum leikmanni, en tapaði 1-3 fyrir Finna. Hann varð í 2. sæti í riðlinum og komst áfram í útsláttarkeppnina. Þar mætir hann Oleg Kartuzovs frá Lettlandi kl. 14.00 í 32 manna úrslitum.
Birgir dróst í H-riðil og tapaði 0-3 fyrir eistneskum leikmanni. Hann fékk svo gefins sigur gegn Dana og varð því í 2. sæti riðilsins. Hann leikur í útsláttarkeppninni gegn Malik Hartvig Bruun Severinsen frá Danmörku kl. 14.30.
Ingi Darvis var í I-riðli. Hann vann annan leik sinn 3-0 gegn Grænlendingi og tapaði hinum í oddalotu gegn eistneskum leikmanni. Hann mætir Martin Frizel frá Litháen í útsláttarkeppninni og hefst leikurinn kl. 15.15.
Forsíðumyndin af Guðbjörgu Völu er úr myndasafni.


