Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ingi Darvis fékk brons í tvíliðaleik á NETU

Ingi Darvis Rodriguez og litháski félagi hans Ignas Sisanovas, töpuðu undanúrslitaleik sínum í tvíliðaleik karla á Norður-Evrópumótinu í Eistlandi, gegn Finnunum Aleksi Räsänen og Alex Naumi. Leiknum lauk 0-3.
Finnarnir sigruðu í tvíliðaleik karla, og lögðu Norðmennina Khai Noah Lam og Martin Fröseth 3-0 í úrslitaleik.
Það er orðið langt síðan íslenskur leikmaður kom heim með verðlaun af Norður-Evrópumótinu.

Þar með er þátttöku Íslendinga lokið á mótinu.

Vefsíða mótsins: https://eltl.ee/voistlused/575/

Forsíðumynd af verðlaunahöfum í tvíliðaleik karla frá Sindre.

Aðrar fréttir