Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Flokkakeppni unglinga verður 10. október að Laugalandi

Íslandsmót í flokkakeppni unglinga fer fram að Laugalandi í Holtum laugardaginn 10. október.

Tímaáætlun og keppnisflokkar:

kl. 10.00 U13 piltar (2014 og yngri)
kl. 10.00 U13 telpur (2014 og yngri)
kl. 14.30 U15 sveinar (2012 og yngri)
kl. 14.30 U15 meyjar (2012 og yngri)
kl. 12.30 U19 drengir (2008 og yngri)
kl. 12.30 U19 stúlkur (2008 og yngri)

Athygli er vakin á að elsti flokkurinn nær nú til drengja og stúlkna 19 ára og yngri í stað 18 ára og yngri, eftir breytingu á reglugerð sl. sumar.

Einungis er heimilt að skrá keppanda í lið í einum flokki.

Gert er ráð fyrir að lið séu skipuð leikmönnum í sama félagi en heimild er fyrir því að senda blandað lið frá fleiri en einu félagi ef það verður til þess að fjölga liðum í keppninni, sbr. reglugerð um flokkakeppni.

Þátttökugjald er kr. 3000 á leikmann í liði.

Leikið verður með Tibhar þriggja stjörnu kúlum.

Skráningarfrestur er til 6. október kl. 22. Hlekkur á skráningu fyrir mótið verður birtur á næstu dögum.
Dregið verður í mótið 7. október kl. 20.30 í Stóragerði 30 í Reykjavík (hjá Auði).

Mótsstjóri verður Auður Tinna Aðalbjarnardóttir og yfirdómari verður Bæring Jón Guðmundsson. Nánari upplýsingar um mótsstjórn verða birtar fljótlega.

Aðrar fréttir