Lúkas og Guðbjörg Vala sigruðu í meistaraflokki á Hjálmarsmótinu
Lúkas André Ólason og Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, bæði úr KR, sigruðu í meistaraflokki elite karla og kvenna á Hjálmarsmótinu, sem fram fór í Íþróttahúsi Hagaskóla 3.-4. október. Keppendur komu frá BH, BM, BR, Garpi, HK, KR, Selfossi og UMFG.
Átta efstu í meistaraflokki elite fá stig til þátttöku á lokamóti BTÍ.
Luca de Gennaro Aquino, KR, sigraði í opnum flokki B (undir 2000 stig) og Piotr Rajkiewicz, HK í opnum flokki C (undir 1500 stig). Sigurvegari í flokki yngri en 16 ára var Adam Lesiak, Víkingi og Franek Lesiak, Víkingi í flokki yngri en 12 ára. Piotr Herman, BR vann flokk 40 ára og eldri. Í byrjendaflokki sigraði Sölvi Björn Björnsson, Víkingi en allir keppendur í flokknum fóru heim með verðlaunapening.
Auk þess var keppt í „Big table“ tvíliðaleik með forgjöf en þar sigruðu nafnarnir Magnús Jóhann Hjartarson og Magnús Gauti Úlfarsson, BH.
Úrslit úr öllum leikjum á mótinu eru aðgengileg á síðu mótsins á vef Tournament Software, https://www.tournamentsoftware.com/tournament/DE6D13D7-2A9B-4872-B325-797A917DF32B
Verðlaunahafar:
Meistaraflokkur karla elite
1. Lúkas André Ólason, KR
2. Óskar Agnarsson, HK
3.-4. Gestur Gunnarsson, KR
3.-4. Magnús Jóhann Hjartarson, BH

Meistaraflokkur kvenna elite
1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
2. Helena Árnadóttir, KR
3. Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR
4. Marta Dögg Stefánsdóttir, KR

Opinn Flokkur B (undir 2000 stig)
1. Luca De Gennaro Aquino, KR
2. Ibrahim Hossam Almassri, BR
3.-4. Anton Óskar Ólafsson, Selfoss
3.-4. Michał May-Majewski, BR

Opinn Flokkur C (undir 1500 stig)
1. Piotr Rajkiewicz, HK
2. Stefán Orlandi, Selfoss
3.-4. Magnús Birgir Kristinsson, Víkingi
3.-4. Piotr Herman, BR

Stelpur og strákar undir 16 ára aldri (fædd 2011 eða fyrr)
1. Adam Lesiak, Víkingi
2. Guðmundur Ólafur Bæringsson, Garpi
3.-4. Benjamín Bjarki Magnússon, BH
3.-4. Vincent Daniel Guerrero Manaure, BH

Stelpur og strákar undir 12 ára aldri (fædd 2015 eða fyrr)
1. Franek Lesiak, Víkingi
2. Úlfur Andrason, Víkingi
3.-4. Sigurður Hrafn Ásgeirsson, KR
3.-4. Agnar Bergmann Stefánsson, HK

Karlar og konur 40 ára og eldri
1. Piotr Herman, BR
2. Stefán Orlandi, Selfoss
3. Holger Kuehne, Selfoss
4. Wojciech Cyganik, BH

Byrjendaflokkur
1. Sölvi Björn Björnsson, Víkingi
2. Rúrik Heiðar Long, BH
3.-4. Atli Hrafn Helguson Melberg, Víkingi
3.-4. Ingibjörg Halla Gestsdóttir, UMFG

„Big table“ tvíliðaleikur með forgjöf
1. Magnús Jóhann Hjartarson/Magnús Gauti Úlfarsson, BH
2. Luca De Gennaro Aquino/Skúli Gunnarsson, KR
3.-4. Eiríkur Logi Gunnarsson/Pétur Gunnarsson, KR
3.-4. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir/Helena Árnadóttir, KR
Myndir frá Borðtennisdeild KR.


