Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Unglingamót HK er laugardaginn 24. október

Unglingamót HK verður haldið laugardaginn 24. október.

Dagskrá:

kl. 10:00 Undir 11 ára hnokkar, fæddir 2016 og síðar
kl. 10:00 Undir 11 ára tátur, fæddar 2016 og síðar
kl. 13:00 Undir 13 ára piltar, fæddir 2014-2015
kl. 13:00 Undir 13 ára tátur, fæddar 2014-2015
kl. 13:00 Undir 15 ára sveinar, fæddir 2012-2013
kl. 13:00 Undir 15 ára meyjar, fæddar 2012-2013
kl. 13:00 Undir 19 ára drengir, fæddir 2008-2011
kl. 13:00 Undir 19 ára stúlkur, fæddar 2008-2011

Leikið verður í riðlum. Leiknar verða 3-5 lotur og fara tveir efstu keppendurnir upp úr hverjum riðli. Eftir að riðlakeppni lýkur verður leikið með einföldum útslætti.

Mótsstjórn: Garðar Malmquist, Heimir Kristjánsson og Óskar Agnarsson.
Yfirdómari er Bjarni Bjarnason.

Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin í hverjum flokki. Leikið verður með hvítum Stiga 3ja stjörnu kúlum.

Þátttökugjald 1.500 kr. Greiðist á staðnum eða með millifærslu á reikning 0358-26-001371, kennitala 630981-0269

Skráningar skal senda á [email protected] fyrir kl. 22 fimmtudaginn 22. október.

Dregið verður í Íþróttahúsi Snælandsskóla föstudaginn 23. október.

Aðrar fréttir