Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Pepsi mót Víkings verður haldið 31. október

PEPSI mótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu sunnudaginn 31. október 2026.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með 3ja stjörnu kúlum.

Dagskrá mótsins:

kl. 10:00 Eldri flokkur karla 60+
kl. 10:30 1. flokkur karla og kvenna
kl. 11:00 Byrjendaflokkur (fyrir þá sem hafa ekki leikið í 2. flokki fyrr)
kl. 12:00 2. flokkur karla og kvenna
kl. 13:00 Meistarafl. karla og kvenna

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Heimilt er að leika í tveimur flokkum.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.500- í hvern flokk.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 29. okt kl 17:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected] eða sms skeyti í síma 8940040 fyrir þann tíma. Hægt er að greiða fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar Víkings: Kennitala 6603850379, reikningsnúmer: 0525-26-3693

Yfirdómari: Pétur Ó. Stephensen
Mótsstjórn skipa:
Benedikt Jóhannsson
Magnús Kristinsson

Dregið verður í mótið fimmtudaginn 29. okt kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu.

Bréf um mótið: Pepsi mótið 2026

Aðrar fréttir