Magnús Gauti sigraði í meistaraflokki karla á Pepsimóti Víkings
Pepsi mótið í borðtennis fór fram í Íþróttahúsi TBR 31. október 2026.
Góð þátttaka var í mótinu þar sem keppendur komu frá félögunum Víkingi, KR, BH, HK, Selfossi, BR, ÍFR og Garpi.
Keppt var í fimm flokkum og var ánægjulegt að sjá marga bráðefnilega borðtennisleikmenn á mótinu. Keppnisfólk Víkings var sigursælt og sigraði í þremur flokkum, BH í einum flokki og BR í einum flokki.
Keppni féll niður í kvennaflokkum.
Úrslit í mótinu voru eftirfarandi:
Meistaraflokkur karla: (sjá mynd á forsíðu)
1. Magnús Gauti Úlfarsson BH
2. Kristján Ágúst Ármann BH
3.-4. Gestur Gunnarson KR
3.-4. Heiðar Leó Sölvason BH

1. flokkur karla:
1. Ibrahim Al-Masry BR
2. Dawid May-Majewski BR
3.-4. Guðmundur Ólafur Bæringsson Garpur
3.-4. Michal May-Majewski BR

2. flokkur karla:
1. Adam Lesiak Víkingur
2. Krystian May-Majewski BR
3.-4. Magnús Birgir Kristinsson Víkingur
3.-4. Piotr Rajkiewicz HK

Byrjendaflokkur:
1. Pétur Steinn Stephensen Víkingur
2. Ármann Darri Ísleifsson Víkingur
3.-4. Þór H. Emilsson HK
3.-4. Úlfur Andrason Víkingur

Eldri flokkur karla:
1. Pétur Ó. Stephensen Víkingur
2. Guðmundur Halldórsson BR
3-4. Sighvatur Karlsson Víkingur
3-4. Finnur Jónsson KR
Myndir frá Borðtennisdeild Víkings.
Úrslit úr öllum leikjum á mótinu má sjá á vef Tournament Software, https://www.tournamentsoftware.com/tournament/AFE751CA-66FE-4E17-BC9E-B80E3F9BE8D0


