Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Bikarkeppni félaga verður haldin 28. nóvember

Bikarkeppni félaga í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 28. nóv 2026 kl. 12:00.
Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.

Leikið verður samkvæmt reglugerð BTÍ um keppnina en röðum leikja í keppninni var breytt skv. reglugerð fyrr á þessu ári.

Fyrirkomulag keppni er eftirfarandi:
Í lið þarf að lágmarki 2 karla og 1 konu. Þar sem um bikarkeppni félaga er að ræða skulu allir leikmennirnir vera í sama félagi. Hver leikmaður má aðeins leika í einu liði. Leikið er með útsláttarfyrirkomulagi. Það lið sigrar sem fyrr hlýtur 4 vinninga og lýkur þá leik.

Leiknir eru 7 leikir í þessari röð:
1. Einliðaleikur karla A–X
2. Einliðaleikur karla B-Y
3. Einliðaleikur kvenna
4. Tvenndarkeppni
5. Tvíliðaleikur karla
6. Einliðaleikur karla A-Y
7. Einliðaleikur karla B-X

Þar sem um bikarkeppni er að ræða eru lið dregin úr einum potti fyrir hverja umferð. Tapi lið leiknum er það úr leik.

Leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin og bikarmeistararnir fá farandbikar til varðveislu í eitt ár.

Þátttökugjaldið í mótið er kr. 6.000 á lið.

Yfirdómari: Pétur Ó. Stephensen.

Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected]/sms skeyti
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 26 nóvember kl. 16:00.

Á forsíðunni má sjá ríkjandi bikarmeistara KR.

Aðrar fréttir