KR-C er efst í 2. deild eftir 6 umferðir
Þriðji leikdagur í 2. deild karla var 21. nóvember en þá fóru fram leikir í 5. og 6. umferð. Keppt var í Stekkjaskóla á Selfossi.
C-lið KR tapaði sínum fyrsta leik þegar liðið beið ósigur fyrir B-liði BR, en er samt sem áður í forystu í deildinni með 10 stig eftir 6 leiki. BH-C er með 8 stig, BR-B er með 7 stig, HK-B hefur 6 stig, BR-A hefur 4 stig og Selfoss-A hefur 1 stig.
Úrslit úr einstökum viðureignum:
BR-A – Selfoss-A 6-1
KR-C – BR-B 4-6
HK-B – BH-C 6-3
BH-C – Selfoss-A 6-1
BR-A – BR-B 3-6
KR-C – HK-B 6-3
Úrslit úr einstökum viðureigum verða lesin inn og birt á vef Tournament Software seinna í mánuðinum, sjá https://www.tournamentsoftware.com/sport/draw.aspx?id=F5C527AC-49A2-47EC-B258-8A1C494E16B5&draw=15.
Á forsíðunni má sjá lið KR-C á mynd frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.


