Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Garpur-A og Selfoss-B í forystu í suðurriðlum 4. deildar

Þriðja og fjórða umferð í suðurriðlum 4. deildar voru leiknar í Stekkjaskóla á Selfossi laugardaginn 21. nóvember.

Síðustu leikirnir í suðurriðlunum verða leiknir þann 7. mars 2027.

Í A-riðli tapaði A-lið Garps sínu fyrsta stigi í vetur þegar liðið gerði jafntefli við Selfoss-D. Garpur-A er þó enn í forystu í riðlinum með 7 stig en Selfoss-D er með 6 stig. Umf. Stokkseyrar vann sinn fyrsta sigur í deildakeppni í borðtennis þegar liðið lagði C-lið Garps, og eru Stokkseyringar nú með 3 stig en Garpur-C er án stiga.

B-lið Selfoss er enn ósigrað í B-riðli og er með 8 stig en Garpur-B er í 2. sæti með 6 stig. Selfoss-C er með 2 stig og Umf. Gnúpverja er án stiga.

Úrslit úr einstökum viðureigum:

A-riðill

Umf. Selfoss-D – Garpur-A 5-5
Umf. Stokkseyrar – Garpur-C 6-4
Garpur-C – Garpur-A 2-6
Umf. Selfoss-D – Umf. Stokkseyrar 6-1

B-riðill

Garpur-B – Umf. Selfoss-C 6-0
Umf. Gnúpverja – Umf. Selfoss-B 0-6
Umf. Selfoss-B – Umf. Selfoss-C 6-0
Garpur-B – Umf. Gnúpverja 6-0

Úrslit úr einstökum viðureigum verða lesin inn og birt á vef Tournament Software seinna í mánuðinum, sjá https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=3A3AC4DB-3603-43C6-BD2F-0413F532C2F7.

Á forsíðunni má sjá Selfoss-B á mynd frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.

Aðrar fréttir