B-lið Víkings komið í forystu í 3. deild karla
Keppni í 3. deild karla hélt áfram í Íþróttahúsi Hagaskóla sunnudaginn 22. nóvember. Keppnin dróst á langinn og að lokum var ákveðið að veita undanþágu og leyfa HK-D og HK-C að leika sinn leik þann 23. eða í síðasta lagi 24. nóvember. Úrslitunum í þeim leik verður bætt við hér í fréttina þegar þau hafa borist.
Í 3. deild hafa ekki öll liðin leikið jafnmarga leiki, ólíkt því sem er í öðrum deildum í deildakeppninni. Víkingur-B er kominn í forystu í deildinni með 11 stig eftir 6 leiki. Akur kemur næst með 9 stig eftir 5 leiki en liðið lék ekki þennan leikdag. KR-D hefur 6 stig eftir 5 leiki, HK-C hefur 2 stig eftir 4 leiki og HK-D er með 2 stig eftir 5 leiki. Lið BM er á botninum án stiga en liðið hefur til þessa ekki mætt til leiks í deildinni.
Úrslit úr einstökum viðureignum:
HK-D – Víkingur-B 0-6
KR-D – HK-C 6-3
KR-D – BM 6-0 (BM mætti ekki til leiks)
HK-C – Víkingur-B 3-6
HK-D – HK-C verður leikinn 23. eða 24.11.
BM – Víkingur-B 0 0-6 (BM mætti ekki til leiks)
Úrslitin úr leikjunum verða fljótlega lesin inn í Tournament Software. Hér má sjá stöðuna í deildinni: https://www.tournamentsoftware.com/sport/draw.aspx?id=3702584E-2FBA-485C-ADB0-DFDD89E2E455&draw=36
Á forsíðumyndinni frá Sigurjóni Ólafssyni má sjá lið HK-D.


