Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Félagsfundur í Dómarafélagi BTÍ sunnudaginn 29. nóvember

Að frumkvæði Péturs Marteins Urbancic Tómassonar, alþjóðadómara í borðtennis og BTÍ verður haldinn félagsfundur í dómarafélagi BTÍ kl. 15:30-16:30 næstkomandi sunnudag í C-sal ÍSÍ. Markmið fundarins er að ræða mögulegar umbætur í dómgæslu hérlendis og er stefnt að því að fundi ljúki með ályktun viðstaddra dómara um úrbætur sem lagðar verði fyrir næsta stjórnarfund BTÍ í desember. Atkvæðisbærir fundargestir eru þeir sem hafa landsdómararéttindi í borðtennis, sbr. reglugerð BTÍ um dómarafélag.

Á síðustu þremur árum hafa tæplega 40 einstaklingar í hreyfingunni fengið landsdómararéttindin og fundahaldarar telja að tækifæri sé til að lyfta dómgæslunni á hærra plan. Þá er mikilvægt að ræða hvað þurfi fyrst að bæta.

Einnig verður boðið upp á að fylgjast með á Microsoft Teams fyrir þau sem ekki eiga heimangengt. Vonandi verður þátttaka með hljóði möguleg á Teams en til vara er a.m.k. unnt að skrifa skilaboð í forritinu. Vinsamlegast sendið línu á [email protected] til að fá rafrænt boð á fundinn.

Fundurinn verður u.þ.b. hálftíma eftir að alþjóðadómaraprófi ITTF lýkur á sama stað og óskar BTÍ próftökum góðs gengis í prófinu. Tveir einstaklingar hafa skráð sig í prófið.

Aðrar fréttir