Reykjavíkurleikarnir um helgina
Reykjavíkurleikjameistarar 2011, Guðmundur E. Stephensen og Halldóra Ólafs.
Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir fara fram næstu helgi, 20-22 janúar í Laugardalnum. Að venju verður keppt í borðtennis eða á laugardeginum 21. janúar í TBR húsinu og hefjast leikar kl. 15:30. Á mótið er boðið bestu borðtennismönnum og konum landsins. Einnig taka þátt í mótinu Adam Harðarson sem spilar nú, þjálfar og æfir í Svíþjóð og Nathan Van Der Lee sem er einn sterkasti leikmaður Hollendinga. Auglýsingu fyrir mótið er að finna hér.