Grand Prix mót KR 10. janúar 2016
Borðtennisdeild KR heldur Grand Prix mót sunnudaginn 10. janúar 2016 í Íþróttahúsi Hagaskóla.
Keppnisflokkar:
- 12:00 Opinn flokkur karla
- 13:30 Opinn flokkur kvenna
Fyrirkomulag keppni
Leikið er með einföldum útslætti og þarf fjórar unnar lotur til að vinna leik. Leikið verður í B-keppni fyrir þá sem tapa fyrsta leik. Raðað verður í töflu samkvæmt keppnisreglum eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ. Leikið verður á Stiga expert borðum með hvítum Tibhar 3ja stjörnu plastkúlum. Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í hvorum flokki en í B-keppni eru aðeins veitt verðlaun fyrir sigur.
Þátttökugjald: 1.500 krónur ef greitt er á keppnisstað. Ef þátttökugjald er greitt við skráningu eða í síðasta lagi 7. janúar kl. 18 er veittur afsláttur og er þátttökugjaldið þá 1.000 krónur. Gjaldið greiðist inn á bankareikning Borðtennisdeildar KR og skal skrifað í athugasemd fyrir hvaða leikmann er verið að greiða en einnig senda tölvupóst með nafni og kennitölu þáttakanda sem greitt er fyrir á netfangið [email protected].
Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129.
Skráning fer fram með tölvupósti til mótsstjórnar fyrir kl. 18 fimmtudaginn 7. janúar. Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ!
Dregið verður í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudagskvöldið 7. janúar klukkan 20:00. Eftir að dregið hefur verið í mótið verður ekki bætt við keppendum, nema að um sannanleg mistök mótsstjórnar sé að ræða.
Mótstjórn:
Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]
Guðrún G Björnsdóttir, gsm. 695 2636, [email protected]
Hannes Guðrúnarson, gsm. 874 6964, [email protected]
Yfirdómari: Auður Tinna Aðalbjarnardóttir.
Fyrir hönd Borðtennisdeildar KR
Ásta M. Urbancic
Uppfært bréf um mótið: Grand Prix mót KR 10.1.2016 uppfært
ÁMU (uppfært 27.12., 29.12. og 30.12.)