Æfingabúðir fyrir stelpur á Hvolsvelli 6.-7. febrúar
Æfingabúðir í borðtennis fyrir stelpur verða haldnar á Hvolsvelli helgina 6.-7. febrúar. Dagskráin byggist aðallega á þremur æfingum og æfingamóti. Ferðin verður mjög lærdómsrík og þá sérstaklega að fá að æfa og kynnast leikmönnum frá öðrum félögum auk þess að kynnast æfingafélögum sínum betur. Á milli æfinga förum við í sund í sundlauginni í íþróttahúsinu á Hvolsvelli, borðum pizzu á Gallerí Pizzu og margt annað skemmtilegt.
Þjálfarar á svæðinu verða Auður Tinna Aðalbjarnardóttir (þjálfari hjá KR), Eyrún Elíasdóttir (þjálfari stúlkna í Víkingi) og Ólafur Elí Magnússon (íþróttakennari og forstöðumaður hjá Dímon).
Gist verður í grunnskólanum á Hvolsvelli og því nauðsynlegt að taka með vindsæng/dýnu og svefnpoka.
Verð fyrir æfingabúðirnar eru 8.000 kr. sem greiðast við brottför. Innifalið í því er allt uppihald, að undanskildu því ef stelpurnar vilja kaupa eitthvað aukalega (eins og bland í poka á laugardagskvöldinu). Möguleiki er fyrir hendi að foreldrar komi með sé áhugi fyrir því.
Farið er með strætó og kostar ferðin 8 miða á Hvolsvöll og 8 miða til baka. Hægt er að kaupa miðana í Mjódd frá kl. 10:00 þegar við förum. Strætómiðarnir eru ekki innifaldir í verðinu fyrir æfingabúðirnar. 20 miða spjald fyrir 6-11 ára kostar 1.200 kr. og sami fjöldi fyrir 12-18 ára kostar 2.800 kr.
Ef einhverjar spurningar vakna um búðirnar skuluð þið ekki hika við að hafa samband við Auði Tinnu ([email protected], s. 868 6873).
Hér er dagskrá helgarinnar:
Dagskrá:
Laugardagur:
11:00 Mæting í strætómiðstöðina í Mjódd
11:30 Strætó nr. 51 fer af stað
13:10 Strætó kemur á Hvolsvöll, stutt hádegishressing
13:30-15:00 1. æfing
15:00-17:00 Sund og hressing
17:00-18:30 2. æfing
19:00-20:00 Pizzuveisla (hlaðborð)
20:00-22:00 Frjáls tími, horft á Söngvakeppni Sjónvarpsins og leikir
22:30 Svefntími
Sunnudagur:
09:30 Morgunmatur
10:00-11:30 3. æfing
11:30-12:00 Hádegismatur
12:00-14:00 Æfingamót
15:07 Brottför frá Hvolsvelli með strætó nr. 52
16:45 Strætó kemur í Mjódd
Ath. Vinsamlegast svarið þessum pósti á [email protected] til að skrá stelpurnar. Við þurfum að vita fjölda á fimmtudag (4. febrúar) eða fyrr.
Á forsíðumyndinni eru verðlaunahafar í meyjaflokki frá aldursflokkamóti KR í janúar 2ö16.
ÁMU (byggt á tölvupósti frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur)