Flokkakeppni unglinga verður haldin 21. febrúar
Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2016 fer fram í TBR-Íþróttahúsinu við Gnoðarvog sunnudaginn 21. febrúar 2016 og hefst keppnin kl. 11:00. Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.
Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna:
- Drengir og stúlkur 19-21 árs (fædd 1995-1997).
- Drengir og stúlkur 16-18 ára (fædd 1998-2000).
- Piltar og stúlkur 15 ára og yngri (fædd 2001 og síðar).
Hverju félagi er heimilt að tilkynna eins mörg lið til þátttöku í hvern flokk og það óskar eftir. Liðum skal þá raðað eftir styrkleika A, B, C o.s.frv. Að lágmarki eru tveir leikmenn í liði. Hver keppandi má aðeins leika í einu liði í einum flokki. Keppt er samkvæmt Corbillion fyrirkomulagi. Tveir einliðaleikir (A: X, B:Y), tvíliðaleikur, og síðan aftur tveir einliðaleikir (A:Y,B:X) ef þörf krefur. Þrjá vinninga þarf til að vinna leik. Leikið verður í riðlum og síðan er leikið upp úr riðlunum með einföldum útslætti ef fleiri en 6 lið eru skráð í sama flokk.
Dagskrá mótsins: Sunnudagur 21. febrúar:
- 11:00 flokkakeppni pilta 15 ára og yngri.
- 11:30 flokkakeppni stúlkna 15 ára og yngri.
- 13:00 flokkakeppni drengja og stúlkna 16-18 ára.
- 13:30 flokkakeppni stúlkna og drengja 19-21 árs.
Yfirdómari: Árni Siemsen.
Veitt verða verðlaun fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki.
Leikið verður með hvítum 3ja stjörnu kúlum.
Þáttökugjald í flokkakeppnina er kr. 2.000 á lið og verður greiðsla innheimt á mótsstað.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 18. febrúar til kl. 17:00.
Dregið verður í TBR-Íþróttahúsinu fimmtudaginn 18. febrúar kl. 18:00
Skráningar berist á netfangið [email protected] eða síma 8940040.
Bréf um mótið: Íslandsmót BTÍ í flokkakeppni unglinga 2016 í borðtennis