Borgar Haug norskur meistari í drengjaflokki
Hinn hálf-íslenski Borgar Haug, varð norskur meistari í sínum aldursflokki ára á norska unglingameistaramótinu um síðustu helgi. Borgar, sem er í 6. sæti á styrkleikalista drengja í sínum aldursflokki í Noregi, sigraði stigahæsta leikmanninn, Fredrik Meringdal, í úrslitaleik.
Borgar lék sem gestur á Arctic mótinu í Reykjavík sumarið 2013 og sigraði þá í flokki 13 ára og yngri.
Myndin af Borgari að fagna meistaratitlinum er fengin af vefsíðu norska borðtennissambandsins.
ÁMU (uppfært 29.2.)