Kvennalandsliðið keppir í forkeppni Evrópumótsins í Danmörku
Keppnisstaður og dagsetning hafa verið ákveðin fyrir riðil Íslands í forkeppni kvennalandsliða fyrir Evrópumeistaramótið 2017. Ísland er í riðli með Albaníu, Danmörku og Noregi. Leikið verður í Bröndby í Danmörku 26.-27. nóvember.
Greint er frá þessu á Facebooksíðu Borðtennissambands Íslands.
Á forsíðumyndinni má sjá kvennalandsliðið sem sigraði á Arctic mótinu 2016.
ÁMU