Úrslit úr Pepsi Grand Prix mótinu í borðtennis
Pepsi Grand Prix mótið í borðtennis fór fram í TBR-Íþrótthúsinu laugardaginn 5. nóvember.
Í opnum flokki karla léku í undanúrslitum Magnús K. Magnússon, Víkingi, gegn Kára Ármannssyni, KR. Leikar fóru þannig að Magnús sigraði 4 – 2 (11-3, 11-5, 11-9, 10-12, 8-11 og 11-2).
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Magnús Gauti Úlfarsson, BH, gegn Sindra Þór Sigurðssyni, Víkingi. Leikar fóru þannig að Magnús Gauti sigraði örugglega 4 – 0 (11-7, 11-7, 11-5, 11-0).
Úrslitaleikinn lék því Magnús K. Magnússon gegn Magnúsi Gauta. Leikurinn var hörkuskemmtilegur þar sem Magnús Kristinn sigraði 4 – 2 (4 -11, 11-5, 11-9, 1-11, 11-9 og 11-8).
Í opnum flokki kvenna lék Sigrún Ebba Tómasdóttir, KR, gegn Aldísi Rún Lárusdóttur, KR. Leikar fóru þannig að Sigrún sigraði örugglega 4 – 0 (11-5, 11-9, 11-7 og 11-7).
Í B-keppninni sigraði Aldís Rún Lárusdóttir, KR, eftir að hafa sigrað Pétur Ó. Stephensen Víkingi í úrslitaleik 4 – 1.
Úrslit í mótinu:
Opinn flokkur karla:
- Magnús K. Magnússon, Víkingur
- Magnús Gauti Úlfarsson, BH
3-4. Sindri Þór Sigurðsson, Víkingur
3-4. Kári Ármannsson, KR
Opinn flokkur kvenna:
- Sigrún Ebba Tómasdóttir, KR
- Aldís Rún Lárusdóttir, KR
- Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR
B-keppni:
- Aldís Rún Lárusdóttir, KR
- Pétur Ó. Stephensen, Víkingur
- Sigurður Herlufsen, Víkingur
Myndir frá Borðtennisdeild Víkings.
ÁMU skv. frétt frá Borðtennisdeild Víkings