Magnús K. Magnússon sigraði í karlaflokki í Bikarkeppni BH
Keppni í karlaflokki í Bikarkeppni BH fór fram 24.-25. janúar. Átta leikmönnum var boðið til leiks og var leikið í 8 manna úrslitum 24. janúar. Undanúrslit og úrslit fóru svo fram 25. janúar.
Magnús K. Magnússon, Víkingi, sigraði í karlaflokki og hlaut 30.000 kr. í verðlaun frá Fasteignasölunni Borg, sem var styrktaraðili mótsins. Magnús sigraði Davíð Jónsson, KR 11-7 í oddalotu í úrslitaleiknum. Leikurinn var jafn og spennandi og skiptust þeir á að vinna loturnar. Davíð hafði frumkvæðið í oddalotunni og var yfir 7-6 en Magnús skoraði fimm síðustu stigin og tryggði sér sigur.
Úrslit í mótinu:
8 manna úrslit:
Pétur Gunnarsson, KR – Magnús K. Magnússon, Víkingi 1-4
Kári Mímisson, KR – Magnús Gauti Úlfarsson, BH 4-3 (12-10 í oddalotu)
Davíð Jónsson, KR – Csanád Forgács-Bálint, HK 4-0
Ingólfur Ingólfsson, KR – Daði Freyr Guðmundsson, Víkingi 1-4
Undanúrslit:
Magnús K. Magnússon, Víkingi – Kári Mímisson, KR 4-3 (12-10 í oddalotu)
Davíð Jónsson, KR – Daði Freyr Guðmundsson, Víkingi 4-0
Úrslit:
Magnús K. Magnússon, Víkingi – Davíð Jónsson, KR – 4-3 (11-7 í oddalotu)
Allir leikir verða settir á YouTube með íslenskri lýsingu og þá má nálgast á Facebook síðu BH, https://www.facebook.com/Bordtennisdeildbh/ Einnig má þar hlusta á upphitunarþátt fyrir mótið og viðtöl við keppendur.
Finnur Hrafn Jónsson tók margar góðar myndir af keppendum og þær má nálgast hér: http://btisland.zenfolio.com/bhbikar2017karlarurslit
ÁMU