Reykjavík International 2017
Borðtennismót Reykjavíkurleikana fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal 28 janúar 2017 í umsjón Borðtennisdeildar Víkings. Keppt var í karla og kvennaflokki þar sem allt besta borðtennisfólk
landsins lék ásamt gestum frá Svíþjóð, Grænlandi, Ungverjalandi og Póllandi
Í karlaflokki lék í undanúrslitum Magnús Kristinn Magnússon Víkingi gegn Karl Magnus Pohjolainen frá Svíþjóð. Leikar fóru þannig að Karl Magnus sigraði 4 – 0 (11-5, 11-7,
11-8 og 11-8) eftir fjöruga leiki. Í hinum undanúrslitaleiknum lék Ivik Nielsen frá Grænlandi gegn Magnúsi Gauta Úlfarssyni BH, leikar fóru þannig
að Grænlendingurinn Ivik Nielsen sigraði 4 – 0 (11-8, 11-4, 11-6, 11-8).
Úrslitaleikinn léku því Svíinn Magnus Karl Magnus gegn Ivik Nielsen frá Gænlandi. Leikurinn var mjög skemmtilegur þar sem Grænlendigurinn Ivik Nielsen sigraði
4 – 2 (11 – 7, 11 – 9, 7 – 11, 7 – 11, 7-11 og 4-11).
Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Aldís Rún Lárusdóttir KR gegn Stellu Kristjánsdóttur Víkingi. Aldís sigraði nokkuð örruglega 4 – 0 (11-5, 11-7,11-4, 11-9).
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Kolfinna Bjarnadóttir HK gegn Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur KR. Kolfinna sigraði 4 – 2 eftir hörkuleiki (8-11, 11 – 5, 11-6, 7 – 11, 11-8 og 11-4).
Úrslitaleikinn léku því í kvennaflokki Aldís Rún Lárusdóttir KR gegn Kolfinnu Bjarnadóttur HK. Aldís Rún sigraði nokkuð örugglega 4 – 0 (11-9, 11-9, 11-4 og 11-5).
Úrslit í mótinu voru eftirfarandi:
Einliðaleikur karla:
- Ivik Nielsen Grænland
- Karl Magnus Pohjolainen Svíþjóð
3-4. Magnús Kristinn Magnússon Víkingur
3-4. Magnús Gauti Úlfarsson BH
Einliðaleikur kvenna:
- Aldís Rún Lárusdóttir KR
- Kolfinna Bjarnadóttir HK
3-4. Stella Kristjánsdóttir Víkingur
3-4. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir KR