Breyting á keppnisreglum BTÍ – erlendir ríkisborgarar
Á fundi stjórnar BTÍ þann 22.02.2017 var gerð breyting á keppnisreglum BTÍ, nánar tiltekið 2. mgr. 3. gr. Breytingin felur það í sér að erlendir ríkisborgarar mega keppa á Íslandsmóti enda hafi þeir verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram. Viðkomandi einstaklingur verður að vera í félagi innan BTÍ.