Daði og Guðrún sigruðu á Grand Prix móti Víkings og Coca-Cola
Grand Prix Coca Cola mótið í borðtennis fór fram í TBR-Íþróttahúsinu 25. febrúar 2017. Mótið var vel sótt þar sem keppendur komu frá Víkingi, BH, KR.
Í opnum flokki karla lék Daði Freyr Guðmundsson Víkingi úrslitaleik gegn Magnúsi Hjartarsyni Víkingi. Íslandsmeistarinn Daði sigraði nokkuð örugglega 4 – 1 (11-7, 9-11, 11-6, 11-5, 11-9).
Í opnum flokki kvenna lék Guðrún G Björnsdóttir KR úrslitaleik gegn Aldísi Rún Lárusdóttur KR. Íslandsmeistarinn Guðrún sigraði 4 – 0 (21-19, 11-8, 11-5 og 12-10).
Í B keppninni sigraði Ellert Georgsson KR í úrslitaleik við Pétur Ó. Stephensen Víkingi 3 – 1 (11-9, 9-11, 11-6 og 11-7).
Opinn flokkur karla
f.v. Breki, Magnús Gauti, Daði Freyr og Magnús Hjartarson.
Opinn flokkur karla:
1. Daði Freyr Guðmundsson Víkingur
2. Magnús Hjartarson Víkingur
3-4. Breki Þórðarson KR
3-4. Magnús Gauti Úlfarsson BH
Opinn flokkur kvenna
f.v. Guðrún, Þórunn og Stella.
Opinn flokkur kvenna:
1. Guðrún G Björnsdóttir KR
2. Aldís Rún Lárusdóttir KR
3-4. Stella Kristjándóttir Víkingur
3-4. Þórunn Árnadóttir Víkingur
B-Keppnin
B – Keppnin:
1. Ellert Georgsson KR
2. Pétur Ó. Stephensen Víkingur
3-4. Aldís Lárusdóttir KR
3-4. Birgir Ívarsson BH
ÁMU skv. frétt frá Pétri Stephensen (myndir settar inn 28.2.)