Úrslit á EM unglinga 16. júlí
Engir leikir unnust hjá íslensku strákunum en nokkrar lotur í liðakeppni á EM unglinga 16. júlí.
Kadett liðið lék við Skotland og Eistland og tapaði báðum leikjunum 0-3. Liðið leikur síðasta leikinn í Q-riðli við Lúxemborg þann 17. júlí kl. 13.15 að staðartíma. Lúxemborg hefur tapað báðum leikjum sínum í Q-riðli, eins og Ísland. Eftir það verður leikið um einstök sæti og ráðast andstæðingar Íslands af úrslitunum í leiknum við Lúxemborg.
Juniorliðið tapaði 0-3 fyrir Finnlandi og Skotlandi. Kári Ármannsson og Magnús Gauti Úlfarsson töpuðu sínum einliðaleik í oddalotu gegn Finnlandi. Íslensku juniorarnir hafa lokið keppni í Q-riðli og leika um sæti í 35-37 í T-riðli. Andstæðingarnir verða líklega Eistland og Malta. Leikirnir fara fram kl. 19.15 þann 17. júlí og kl. 11 þann 18. júlí.
Úrslit úr einstökum leikjum:
Kadett sveinar (15 ára og yngri)
Skotland – Ísland 3-0
- Dylan Curry – Ingi Darvis Rodriquez 3-0 (12-10, 11-8, 11-8) 1-0
- Danny Bajwa – Ingi Brjánsson 3-0 (11-7, 11-8, 11-4) 2-0
- Danny Bajwa/Martin Johnson – Ingi Brjánsson/Ingi Darvis Rodriquez 3-1 (11-9, 9-11, 11-5, 11-5) 3-0
Ísland – Eistland 0-3
- Ingi Darvis Rodriquez – Mart Luuk 0-3 (8-11, 7-11, 8-11) 0-1
- Ísak Indriði Unnarsson – Stanislav Strogov 0-3 (2-11, 3-11, 3-11) 0-2
- Ingi Brjánsson/Ingi Darvis Rodriquez – Mart Luuk/Stanislav Strogov 0-3 (6-11, 7-11, 2-11) 0-3
Junior drengir (16-18 ára)
Finnland – Ísland 3-0
- Matias Ojala – Kári Ármannsson 3-2 (11-7, 6-11, 11-4, 10-12, 11-7) 1-0
- Alex Naumi – Magnús Gauti Úlfarsson 3-2 (9-11, 11-6, 12-10, 9-11, 11-6) 2-0
- Pedram Moradabbasi – Ellert Kristján Georgsson 3-0 (11-2, 11-2, 11-2) 3-0
Skotland – Ísland 3-0
- Christopher Wheeler – Kári Ármannsson 3-0 (11-5, 11-6, 11-6) 1-0
- Yazer Razouk – Magnús Gauti Úlfarsson 3-0 (11-9, 11-4, 11-9) 2-0
- Keir Morton – Birgir Ívarsson 3-0 (11-7, 11-7, 11-4) 3-0
Á forsíðunni má sjá Birgi Ívarsson í leik á mótinu.