Staðan í Grand Prix og Aldursflokkamótaröðunum að loknum þremur mótum
Í meðfylgjandi skjölum má sjá stöðuna að loknum þremur mótum í Grand Prix og Aldursflokkamótaröðunum.
Í Grand Prix mótaröðinni er Magnús Gauti Úlfarsson, BH efstur í karlaflokki með 10 stig. Davíð Jónsson, KR, Magnús Jóhann Hjartarson, Víkingi og Sindri Þór Sigurðsson, Víkingi hafa 8 stig.
Í kvennaflokki er Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi efst með 10 stig. Aldís Rún Lárusdóttir, KR, Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, KR og Guðrún Gestsdóttir, KR koma næst með 8 stig.
Í Aldursflokkamótaröðinni hafa tveir keppendur unnið öll mótin í sínum flokki. Það eru Ársól Clara Arnardóttir, KR í stúlknaflokki og Eiríkur Logi Gunnarsson, KR í piltaflokki. Aðrir leikmenn sem eru efstir í sínum flokki eru: Alexander Ivanov, BH í hnokkaflokki; Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR í tátuflokki; Agnes Brynjarsdóttir, Víkingi í telpnaflokki; Matiss Meckl, Akri og Thor Thors, KR í sveinaflokki; Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR í meyjaflokki og Magnús Gauti Úlfarsson, BH í drengjaflokki.
Staðan í Grand Prix mótaröðinni: Grand prix mótaröðin 2017-18
Staðan í Aldursflokkamótaröðinni: Aldursflokkamótaröðin 2017-18
Mynd af Stellu á forsíðu frá Íslandsmóti unglinga vorið 2017.
ÁMU