Úrslit ÍFR mótsins fyrr í dag
Í dag fór fram hið stórskemmtilega árlega 2. flokks mót Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík (ÍFR) en á mótinu taka þátt bæði fatlaðir og ófatlaðir í bæði karla og kvennaflokki. Hafa margir Íslandsmeistarar háð þar sína fyrstu keppni í 2 flokki. Veg og vanda af mótinu höfðu þjálfarar ÍFR í borðtennis þeir Kristján Aðalbjörn Jónasson og Helgi Þ Gunnarsson.
Í dag bar Gestur Gunnarsson úr KR sigur úr bítum í 2. flokki karla og Harriet Cardew úr BH í 2 flokki kvenna. Var þetta fyrsti sigur þeirra beggja í 2. flokks móti.
Verðlaun í dag veitti Garðar Steingrímsson formaður ÍFR.