Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

HK Íslandsmeistarar í 2. deild karla

Frá vinstri sigurlið HK B: Leikmennirnir Óskar Agnarsson, Brynjólfur Þórisson, Örn Þórðarson og þjálfarinn Bjarni Þ Bjarnason.

Fyrr í dag fór fram úrslitakeppnin í 2. deild karla á Akureyri.  Í undanúrslitum áttust við lið KR B og Akurs.  Var sá leikur mjög spennandi en Akur náði forystu í leiknum 2-1 eftir tvíliðaleikinn en KR B hafði betur á endasprettinum og vann viðureignina 3-2.

Lið HK B fékk walkover gegn liði Víkings D sem boðaði forföll.

Í úrslitum léku því lið KR B og HK B.  Í fyrsta leiknum áttust við Brynjólfur Þórisson HK og Björn Brynjar Jónsson KR.  Vann Brynjólfur viðureignina 3-0 (11-3, 11-4 og 11-9).  Í öðrum leik mættust þeir Óskar Agnarsson HK og Hlöðver Steini Hlöðversson KR.  Fór sá leikur 3-1 fyrir Hlöðver (11-7, 9-11, 10-12 og 9-11). Í tvíliðaleiknum mættust Óskar/Örn HK og Hlöðver/Gestur KR.  Var sá leikur spennandi en þeir Hlöðver og Gestur unnu viðureignina 3-2 (11-9, 5-11, 8-11, 12-10 og 7-11). Í fjórðu viðureigninni mættust þeir Brynjólfur og Gestur.  Brynjólfur vann fyrstu lotuna 11-8 en Gestur tvær næstu lotur 11-9 og 11-2.  Brynjólfur gerði sér lítið fyrir og vann næstu tvær lotur 11-7 og 11-7 og var staðan þar með orðin 2-2 í úrslitaviðureigninni.

Í oddaleik um deildarmeistaratitilinn mættust Örn Þórðarson HK og Björn Brynjar Jónsson KR.  Fyrsta lotan var spennandi þar sem Örn hafði betur 14-12.  Næstu tvær lotur vann Örn 11-6 og 11-6 og tryggði hann HK liðinu þar með Íslandsmeistaratitilinn í 2. deild!

Mun HK því á næsta ári spila með  tvö lið í 1. deild karla í fyrsta sinn.   KR á enn von til þess að vera með tvö lið í 1. deild karla að ári en til þess þarf B liðið að vinna B lið Víkinga.

frá vinstri: lið Akurs, HK og KR

Leikskýrsla úrslitaviðureignar HK B og KR B

Leikskýrsla undanúrslitaviðureignar KR B og Akurs

Aðrar fréttir