BH, KR, Umf. Samherjar og Víkingur unnu titlana á seinni degi Íslandsmóts unglinga
BH og KR unnu fimm titla hvort félag, Umf. Samherjar fjóra og Víkingur þrjá, á Íslandsmóti unglinga, sem fram fór að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit helgina 14.-15. apríl.
Mótið var skipulagt af Umf. Samherjum, Æskunni og Akri og voru keppendur rúmlega 80 talsins. Þeim fylgdu fjöldi aðstandenda og gistu sumir í Hrafnagilsskóla en aðrir í sumarhúsum eða íbúðum á svæðinu. Hægt var að vera í fæði á meðan á móti stóð og þá buðu mótshaldarar í sundlaugarpartý á laugardagskvöldinu. Mótið heppnaðist vel og fóru gestir ánægðir heim.
Eiríkur Logi Gunnarsson, KR; Heiðmar Sigmarsson, Umf. Samherjum og Magnús Gauti Úlfarsson, BH unnu þrjá titla hver á mótinu. Hildur Marín Gísladóttir, Umf. Samherjum, Sól Kristínardóttir Mixa, BH og Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi, unnu tvo titla hver. Þess má geta að Eiríkur Logi tapaði ekki einni einustu lotu í öllum þremur greinunum á mótinu.
Fjölmargar myndir frá mótinu hafa verið settar inn á heimasíðu BTÍ á Facebook.
Verðlaunahafar
Einliðaleikur hnokka fæddir 2007 og síðar
- Alexander Ivanov, BH
- Nikulás Dagur Jónsson, BH
3.-4. Óskar Davíð Áss Sigurðsson, KR
3.-4. Theodór Svarfdal Sveinbjörnsson, BH
Alexander varði titilinn sem hann vann í fyrra og á ennþá eitt ár eftir í flokknum. Hann tapaði einni lotu í einliðaleik, gegn Nikulási í riðlinum, en vann Nikulás 3-0 (11-2, 11-9, 11-8) í úrslitaleiknum. Hinir hnokkarnir í verðlaunasætunum eru líka gjaldgengir í flokkinn á næsta ári. Óskar vantar á myndina.
Einliðaleikur pilta fæddir 2005-2006
1. Eiríkur Logi Gunnarsson, KR
2. Kristófer Júlían Björnson, BH
3.-4. Trausti Freyr Sigurðsson, Umf. Samherjum
3.-4. Jázeps Máni Meckl, Akri
Eiríkur kemur úr mikilli borðtennis- og íþróttafjölskyldu og er sá fjórði í fjölskyldunni sem verður Íslandsmeistari í einliðaleik í borðtennis. Hann sigraði Kristófer 3-0 (11-5, 11-9, 11-7) í úrslitum. Hinir piltarnir í verðlaunasætunum eiga allir feður sem spila borðtennis.
Einliðaleikur sveina fæddir 2003-2004
- Heiðmar Örn Sigmarsson, Umf. Samherjum
- Arnar Logi Viðarsson, Akri
3.-4. Mímir Kristínarson Mixa, BH
3.-4. Reynir Snær Skarphéðinsson, BH
Heiðmar varði titilinn sem hann vann í fyrra og vann Arnar Loga í æsispennandi úrslitaleik 3-2 (7-11, 11-5, 9-11, 12-10, 11-9).
Einliðaleikur drengja fæddir 2000-2002
- Magnús Gauti Úlfarsson, BH
- Ingi Darvis Rodriguez, Víkingi
3.-4. Birgir Ívarsson, BH
3.-4. Ellert Kristján Georgsson, KR
Magnús Gauti varð Íslandsmeistari þriðja árið í röð og tapaði ekki lotu í einliðaleik. Hann vann Inga 3-0 (11-5, 11-8, 11-2) í úrslitaleiknum.
Einliðaleikur táta fæddar 2007 og síðar
- Friðrika Sigurðardóttir, KR
- Sara Dögg Sindradóttir, Umf. Samherjum
3.-4. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
3.-4. Lilja Óskarsdóttir, Umf. Samherjum
Friðrika vann alla sína leiki 3-0 og lagði Söru 11-2, 14-12, 11-5 í úrslitaleiknum. Lilju vantar á myndina.
Einliðaleikur telpna fæddar 2005-2006
- Agnes Brynjarsdóttir, Víkingi
- Sól Kristínardóttir Mixa, BH
3.-4. Alexía Kristínardóttir Mixa, BH
3.-4. Freyja Dís Benediktsdóttir, KR
Agnes varði titilinn sem hún vann í fyrra og vann Sól örugglega í úrslitaleiknum 3-0 (11-6, 11-7, 11-5) en þessar tvær hafa verið í úrslitum í flestum mótum á aldursflokkamótaröðinni í vetur.
Einliðaleikur meyja fæddar 2003-2004
- Hildur Marín Gísladóttir, Umf. Samherjum
- Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR
3.-4. Lóa Floriansdóttir Zink , KR
3.-4. Þóra Þórisdóttir, KR
Hildur sigraði nokkuð óvænt í flokknum, en henni var ekki raðað meðal fjögurra stigahæstu keppendanna. Hún reynist sterkari í jöfnu lotunum í úrslitunum og vann Kristínu 3-1 (11-9, 4-11, 12-10, 14-12) í úrslitaleiknum.
Í þessum flokki gerðist það sem sjaldan gerist, að leikmennirnir í 2. sæti A- og B-riðils mættust í úrslitum svo engin þeirra fór ósigruð í gegnum mótið. Hildur tapaði fyrir Þóru og Kristín fyrir Lóu í riðlunum.
Einliðaleikur stúlkna fæddar 2000-2002
- Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi
- Ársól Clara Arnardóttir, KR
- Þórunn Ásta Árnadóttir, Víkingi
- Lára Ívarsdóttir, KR
Stella vann Ársól 3-1 (11-13, 11-7, 11-3, 11-7) og tryggði sér titilinn í þessum flokki annað árið í röð.
Tvíliðaleikur pilta fæddir 2005 og síðar
- Eiríkur Logi Gunnarsson/Gunnar Þórisson, KR
- Jázeps Máni Meckl/Trausti Freyr Sigurðsson, Akri/Umf. Samherjum
3.-4. Birkir Smári Traustason/Kristófer Júlían Björnson, BH
3.-4. Ólafur Steinn Ketilbjörnsson/Stefán Fannar Hallgrímsson, KR
Eiríkur og Gunnar unnu Jázeps og Trausta 3-0 (13-11, 11-6, 11-8) í úrslitaleiknum en þetta var fyrsti titill þeirra í tvíliðaleik.
Tvíliðaleikur sveina fæddir 2003-2004
- Heiðmar Örn Sigmarsson/Úlfur Hugi Sigmundsson, Umf. Samherjum
- Mímir Kristínarson Mixa/Reynir Snær Skarphéðinsson, BH
3.-4. Askur Bjarnason/Dagur Stefánsson, Víkingi
3.-4. Matthías Benjamínsson/Thor Thors, KR
Heiðmar og Úlfur vörðu titilinn frá því í fyrra án þess að tapa lotu og unnu Mími og Reyni 3-0 (11-5, 11-9, 11-7) í úrslitum. Ask og Dag vantar á myndina.
Tvíliðaleikur drengja fæddir 2000-2002
- Birgir Ívarsson/Magnús Gauti Úlfarsson, BH
- Ellert Kristján Georgsson/Gestur Gunnarsson, KR
3.-4. Elvar Pierre Kjartansson/Karl Andersson Claesson, KR
3.-4. Ingi Darvis Rodriguez/Ísak Indriði Unnarsson, Víkingi
Úrslitaleikurinn í þessum flokki var æsispennandi en Birgi og Magnúsi tókst að knýja fram sigur 13-11 í oddalotu (8-11, 12-10, 7-11, 11-6, 13-11), eftir að Ellert og Gestur höfðu náð forystu 11-10. Þeir unnu þar með titil í tvíliðaleik fjórða árið í röð.
Tvíliðaleikur telpna fæddar 2005 og síðar
- Alexía Kristínardóttir Mixa/Sól Kristínardóttir Mixa, BH
- Agnes Brynjarsdóttir/Berglind Anna Magnúsdóttir, Víkingi/KR
3.-4. Elísa Þöll Bjarnadóttir/Margrét Dana Þórsdóttir, KR/Umf. Samherjum
3.-4. Freyja Dís Benediktsdóttir/Friðrika Sigurðardóttir, KR
Tvíburasysturnar Alexía og Sól unnu Agnesi og Berglindi 3-2 (8-11, 11-5, 11-6, 7-11, 11-8) í jöfnum og vel leiknum úrslitaleik og tryggðu sér sinn fyrsta titil í tvíliðaleik. Flestar stúlknanna í verðlaunasætum verða ennþá gjaldgengar í þessum flokki á næsta ári. Margréti vantar á myndina.
Tvíliðaleikur meyja fæddar 2003-2004
- Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir/Þuríður Þöll Bjarnadóttir, KR
- Lóa Floriansdóttir Zink/Þóra Þórisdóttir, KR
- Embla Eir Jónsdóttir/Hildur Marín Gísladóttir, Akri/Umf. Samherjum
Kristín varði titilinn, sem hún vann með Þóru í fyrra en Þuríður vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Úrslitaleikurinn var sveiflukenndur en lauk með 3-1 (3-11, 11-2, 11-5, 11-7) sigri Kristínar og Þuríðar. Emblu vantar á myndina.
Tvíliðaleikur stúlkna fæddar 2000-2002
- Stella Karen Kristjánsdóttir/Þórunn Ásta Árnadóttir, Víkingi
- Ársól Clara Arnardóttir/Lára Ívarsdóttir, KR
Stella og Þórunn unnu þriðja árið í röð og lögðu Ársól og Láru 3-1 (11-9, 5-11, 11-7, 11-4) í úrslitaleik.
Úrslit í tvenndarkeppni – sjá frétt frá 14. apríl.
Allir leikmenn í flokkum 11 ára og yngri fengu viðurkenningu fyrir þátttökuna.
Sýnt var beint frá mótinu á vefnum.
Myndir frá Brynjari Ólafssyni og frá Borðtennissambandi Íslands.
Úrslit úr öllum leikjum má sjá á vef mótsins á síðu Tournament Software, http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=8F495D03-31D9-435E-B249-13B75BDCEE25
ÁMU (uppfært 16. og 17.4.)